Þann 15. apríl s.l. fóru félagsmenn LUF í vísindaferð í Utanríkisráðuneytið. Þar tók ráðuneytisstjóri á móti okkur og fengum við kynningu á starfsemi ráðuneytisins og um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Rætt var meðal annars um Atlantshafsbandalagið, varnarsamninginn við Bandaríkin, átökin í Úkraínu og Mið-Austurlöndum, netárásir og breytingar í alþjóðasamskiptum – svo fátt eitt sé nefnt. Við þökkum Utanríkisráðuneytinu góðar móttökur. Eftir að hafa notið góðra veitinga í ráðuneytinu héldum við upp á Hallveigarstíg í höfuðstöðvar Samfylkingarinnar. Þar tóku á móti okkur forseti og varaforseti Ungs jafnaðarfólks sem sögðu okkur frá starfi sínu og sögu flokksins. Við enduðum heimsóknina á skemmtilegu pub quiz og léttum veitingum og kunnum UJ einnig bestu þakkir fyrir góðar móttökur.